Memmm

Samstarf

Innleiðing og uppbygging Opna leikskóla Memmm í samstarfi við sveitarfélög, stofnanir og aðra samstarfsaðila.

Opni leikskóli Memmm vinnur í samstarfi við sveitarfélög og stofnanir. Það er mikilvægur þáttur í starfseminni að hún sé gjaldfrjáls fyrir fjölskyldur, með því er hún aðgengileg öllum fjölskyldum óháð félagslegrar stöðu.

Samstarfssamningar eru ólíkir en markmið þeirra er ávallt að innleiða og efla starfsemi Opna leikskóla Memmm, fjölskyldum til heilla. Samstarfssamningur við Vinnumálastofnun hefur miðað að því að hvetja fjölskyldur, sem sótt hafa um alþjóðlega vernd, til virkni í Opna leikskóla Memmm með ung börn sín. Með virkni og þátttöku má auka lífsgæði fjölskyldunnar og styðja við þroska ungra barna.

Samstarf og stuðningur

Samstarfsaðilar 2026

Reykjavík
Reykjavík
Hafnarfjörður
Hafnarfjörður
Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun

Einnig hefur Opni leikskóli Memmm fengið styrki fyrir afmörkuð verkefni frá Mennta- og Barnamálaráðuneytinu.

Úttekt 2026

Ávinningur fyrir sveitarfélög og barnafjölskyldur

Ný úttekt á starfsemi Opna leikskóla Memmm varpar ljósi á umfang, eftirspurn og opinberan ávinning þjónustunnar fyrir fjölskyldur og sveitarfélög.

Innra mat 2024–2025

Skýrsla innra mats

Árlega er lögð þjónustukönnun fyrir þátttakendur og í kjölfarið er gefin út skýrsla um innra mat á starfsemi Opna leikskóla Memmm.

Hafðu samband

Áhugi á samstarfi við Opna leikskóla Memmm?

Við tökum fagnandi á móti fyrirspurnum frá sveitarfélögum, stofnunum, foreldrum og öðrum sem hafa áhuga á að kynna sér starfsemina eða ræða mögulegt samstarf.