Memmm

Starfsfólk

Opni leikskóli Memmm samanstendur af fagfólki sem hefur áhuga á velferð fjölskyldna á Íslandi.
Kristín Stefánsdóttir

Kristín Stefánsdóttir

Iðjuþjálfi

Kristín útskrifaðist sem iðjuþjálfi frá Karolinska Institutet í Stokkhólmi árið 1999. Hún hefur reynslu af því að nýta sér þjónustu opins leikskóla í Svíþjóð þegar hún eignaðist börn sín þar og veit hversu mikilvægur vettvangur opinn leikskóli er með tilliti til fræðslu, tengslamyndunar og inngildingar.

Kristín hefur unnið í Svíþjóð og á Íslandi á ýmsum vettvangi fyrir ríki, borg og einkareknar stofnanir/félagasamtök. Hún hefur starfað bæði með ungum og öldnum með virkni og endurhæfingu að leiðarljósi. Hún styðst oft við leik og skapandi greinar við störf sín. Hún er jákvæð, lausnamiðuð og fer ótrautt ótroðnar slóðir.

Lýðheilsa og forvarnir eru Kristínu hugleiknar og lætur hún gjarnan til sín taka á þeim vettvangi.

Barna- og fjölskyldumenning liggur hjarta hennar nær og hefur hún skipulagt og tekið þátt í mörgum viðburðum sem haldnar eru fyrir barnafjölskyldur.

Kristín er ein af þremur stofnendum Opna leikskóla Memmm, er formaður í stjórn félagasamtakanna og sinnir daglegum störfum í Opna leikskóla Memmm.

Helga Hreiðarsdóttir

Helga Hreiðarsdóttir

Leikskólakennari

Helga útskrifaðist sem leikskólakennari 2007 frá Kennaraháskóla Íslands. Hún hefur fjölbreytta reynslu af leikskólakennarastarfinu á Íslandi og í Bandaríkjunum. Hún hefur unnið lengi með börnum en hefur einnig reynslu af samvinnu og stuðningi við fjölskyldur. Í Bandaríkjunum vann hún meðal annars í foreldrareknum leikskóla þar sem foreldrar sinntu öllum hlutverkum innan leikskólans.

Þegar Helga bjó erlendis og eignaðist sitt fyrsta barna reyndi hún á eigin skinni að hafa lítið bakland sem nýtt foreldri. Eftir þá reynslu hefur hún brunnið fyrir því að foreldrar með ung börn hafi samastað í samfélaginu á Íslandi. Með þátttöku og virkni má auka lífsgæði og líðan í fæðingarorlofi og að því loknu.

Helga er jákvæð, sveigjanleg og skapandi. Henni er fjölskyldu- og barnamenning hugleikin og hefur hún komið að skipulagningu margskonar viðburða fyrir fjölskyldur. Einnig skipuleggur hún Play Iceland viðburð árlega, þar sem erlent leikskólastarfsfólk kynnir sér leikskóla og barnamenningu á Íslandi.

Hún er ein af þremur stofnendum Opna leikskóla Memmm, er gjaldkeri í stjórn félagasamtakanna og sinnir daglegum störfum í Opna leikskóla Memmm.

María Ösp Ómarsdóttir

María Ösp Ómarsdóttir

Kennari

María útskrifaðist sem grunn- og framhaldsskólakennari árið 2008 frá Háskólanum í Suðaustur Noregi (USN) Hún hefur kennt öllum aldurshópum grunnskóla frá árinu 2011 en hefur þó starfað lengst sem leikskólastjórnandi hjá Hjallastefnunni, eða frá árinu 2015.

María er 5 barna móðir og sjómannskona. Henni er umhugað um velferð fjölskyldna og að samfélagið styðji sérstaklega markvisst við þær fyrstu 1000 daga í lífi hvers barns. María er áræðin, lausnamiðuð og skapandi. Samfélagsleg nýsköpun og innleiðing skapandi lausna í málefnum fjölskyldna og menntakerfisins er hennar hjartans mál. Hún einstaklega góð í því að sjá lausnir þar sem aðrir sjá hindranir og vandamál.

María er ein af þremur stofnendum Opna leikskóla Memmm og situr í stjórn félagasamtakanna.

Helga Ösp Jóhannsdóttir

Helga Ösp Jóhannsdóttir

Leikskólakennari

Helga Ösp útskrifaðist sem leikskólakennari 2006 frá Kennaraháskóla Íslands. Hún hefur mikla reynslu af leikskólastarfi í Reykjavík. Innan leikskólans hefur hún starfað sem kennari, deildastjóri og verkefnastjóri.

Auk þess hefur Helga Ösp verið verkefnastjóri Samfélagshússins Aflagranda 40 þar sem hún vann með fólki á öllum aldri. Þar sinnti hún reglubundnu félagsstarfi sem og hélt utan um viðburði hússins. Meðal þeirra voru foreldramorgnar fyrir fjölskyldur í hverfinu þar sem foreldrar og forráðamenn fengu aðstoð frá fagaðlum, meðal annars varðandi upplýsingar og leiðbeiningar með leikskólamál og uppeldi.

Helga Ösp er áræðin, lausnamiðuð og skapandi. Hún elskar að breyta hversdagslegum hlutum, sem aðrir hefðu kannski hent, í þroskandi leikföng sem börnin leika sér með aftur og aftur. Skapandi starf með börnum hefur verið Helgu sérstaklega hugleikið í störfum sínum. Helga hefur víðtæka reynslu af félags- og æskulýðsstarfi.

Helga Ösp er meðeigandi og í stjórn Matbæjar ehf. sem á og rekur veitingastofuna Kænuna. Hún sinnir daglegum störfum í Opna leikskóla Memmm.