Memmm

Opni leikskólinn

Aðstaða til þess að leika og hitta aðrar fjölskyldur.

Börn og foreldrar að leika

Opinn leikskóli Memmm býður foreldrum/forsjáraðilum og ungum börnum þeirra í fjölskylduvæna aðstöðu til að leika saman og hitta aðrar fjölskyldur. Reglulega er boðið upp á fræðslu um málefni uppeldis og barna. Opni leikskólinn er gjaldfrjáls fyrir alla sem hann sækja.

Í Opna leikskólanum er velkomið að mæta hvenær sem er á opnunartíma. Foreldrar eru ávallt með börnum sínum á meðan heimsókn stendur. Starfsfólk Memmm tekur vel á móti gestum, býður upp á kaffi og heldur utanum söngstundir. Opni leikskólinn er góður vettvangur fyrir foreldra/forsjáraðila að hitta aðra í svipaðri stöðu sem og gott tækifæri fyrir börnin að hitta jafnaldra sína og efla félagsþroska á þessum mótandi aldri.

Í Opna leikskólanum er haft að leiðarljósi að skapa uppbyggilega og valdeflandi þjónustu fyrir fjölskyldur með ung börn.

Samstarfsaðilar

Innleiðing og uppbygging Opna leikskóla Memmm er í samstarfi við Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbæ og Vinnumálastofnun. Einnig hefur Memmm verið í samstarfi við Mennta- og Barnamálaráðuneytið hvað varða afmörkuð verkefni um farsæld barna.

Vinnumálastofnun
Hafnarfjörður
Reykjavíkurborg

Opnunartímar og dagskrá

Á samfélagsmiðlum opna leikskólans má sjá nánari upplýsingar um opnunartíma, dagskrá og staðsetningar.

Skýrsla innra mats

Árlega er lögð þjónustukönnun fyrir þátttakendur og í kjölfarið er gefin út skýrsla um innra mat á starfsemi Opna leikskólans.