Memmm
Námskrá • Nóvember 2026

Námskrá Opna leikskóla Memmm

Leikur • Tengsl • Samfélag

Söngstund og samvera fjölskyldna í Opna leikskóla Memmm
Opinbert skjal

Sækja námskrá sem PDF

Hér er hægt að hlaða niður heildarnámskrá Opna leikskóla Memmm á PDF formi (nóvember 2026).

Inngangur

Það er okkur sérstök ánægja að Opni leikskóli Memmm, sem byrjaði sem fjölskyldustundir 2021 á kaffihúsinu Dal, á nú sína eigin námskrá!

Starfsemin hefur náð að vaxa og dafna þökk sé samstarfi við þau sveitarfélög, ráðuneyti og stofnanir sem með okkur starfa og erum við þeim mjög þakklát fyrir að stíga á vagninn með okkur. Einnig þökkum við þeim fjölbreytta hópi fjölskyldna sem hefur haft mótandi áhrif á starfsemi Opna leikskóla Memmm.

Námskrá þessi lýsir áherslum, markmiðum og starfsháttum Opna leikskóla Memmm og er leiðarljós í því starfi sem fer þar fram. Við gerð hennar nutum við faglegrar ráðgjafar Ellenar Calmon og kunnum við henni miklar þakkir fyrir.

Það er okkar sannfæring að starfsemi Opna leikskóla Memmm geti skipt sköpum til farsældar á fyrstu æviárum ungra barna þar sem leik, tengslum og foreldrasamfélagi er gert hátt undir höfði.

Fyrir hönd Opna leikskóla Memmm

Helga Hreiðarsdóttir Helga Ösp Jóhannsdóttir Kristín Stefánsdóttir María Ösp Ómarsdóttir

1. Velkomin í Opna leikskóla Memmm

Leikur • Tengsl • Samfélag

Opni leikskóli Memmm hóf starfsemi á Íslandi vorið 2021 og byggir á sænskri fyrirmynd um opinn leikskóla „öppen förskola“. Starfsemi Opna leikskóla Memmm samræmist meðal annars gildum Farsældarlaganna, Barnasáttmála og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Þá hefur einnig verið litið til Aðalnámskrár leikskóla við skipulag starfsins.

Opni leikskóli Memmm er gjaldfrjáls, inngildandi og valdeflandi þjónusta fyrir foreldra og forsjáraðila sem eru heima með ung börn, ýmist í fæðingarorlofi, að brúa bilið á milli orlofs og dagvistunar eða eru heima með börn á aldrinum 0–5 ára af öðrum ástæðum.

Fjölskyldum er frjálst að koma hvenær sem er á opnunartíma þar sem þær geta notið samveru, leiks og fræðslu í öruggu og örvandi umhverfi. Áhersla er lögð á íslenskt málumhverfi og málörvun barna í gegnum leik, söng og samskipti. Opni leikskóli Memmm býður einnig reglulega upp á gagnreynda fræðslu fagfólks um uppeldi, þroska, næringu og öryggi barna svo eitthvað sé nefnt.

Meginmarkmið Opna leikskóla Memmm er að efla félagsleg tengsl fjölskyldna, draga úr einangrun og einmanaleika, styrkja foreldra í uppeldishlutverkinu og stuðla að velferð og þroska barna með snemmtækum stuðningi. Mikilvægt er að skapa vettvang þar sem öll eru velkomin, óháð uppruna, fötlun eða félagslegri stöðu.

2. Hlutverk og framtíðarsýn

Hlutverk Opna leikskóla Memmm er að efla velferð barna og fjölskyldna með leik, samveru, fræðslu og stuðningi þar sem áhersla er lögð á íslenskt málumhverfi og málörvun.

Við í Opna leikskóla Memmm viljum að allar fjölskyldur hafi aðgang að öruggu og hvetjandi umhverfi. Efnahagur, uppruni, tungumál eða fötlun eiga ekki að hindra þátttöku. Framtíðarsýn okkar er að Opni leikskóli Memmm komi til með að eiga samstarf við ýmsa aðila sem þjónusta börn og fjölskyldur á Íslandi, svo sem heilsugæsluna og félagsþjónustu og geti komið að því að sinna leiðbeinandi hlutverki í þágu fjölskyldnanna. Farsælast væri ef starfsemi Opna leikskóla Memmm yrði, líkt og gerist í Svíþjóð, sjálfsagður hluti af þjónustu við barnafjölskyldur á Íslandi þar sem áhersla er meðal annars lögð á að:

  • Efla þroska barna með leik og samskiptum.
  • Styrkja tengsl barna og foreldra.
  • Draga úr einangrun og einmanaleika.
  • Bjóða upp á íslenskt málumhverfi og málörvun.
  • Styðja foreldra, stuðla að inngildingu.
  • Vera fyrstu kynni af leikskólastarfi.
  • Stuðla að sjálfbærni og sköpun.
  • Fræða og stuðla að heilbrigði og velferð barna og fjölskyldna þeirra.

3. Grunngildi Opna leikskóla Memmm

Umhyggja og öryggi

Við tökum vel á móti öllum. Við sýnum hlýju, virðingu og skilning.

Leikur og gleði

Við gefum börnum tíma og rými til að kanna, skapa og njóta.

Samvera og tengsl

Við sköpum tækifæri til vináttu, samtala og stuðnings.

Valdefling og þátttaka

Við hlustum á fjölskyldur og tökum mið af þörfum þeirra.

Inngilding og jafnrétti

Við fögnum ólíkum tungumálum, menningu og fjölskyldugerðum.

4. Barnasýn og réttindi barna

Í Opna leikskóla Memmm lítum við á börn sem forvitna og virka einstaklinga. Hvert barn hefur sína styrkleika, áhuga og þarfir. Börn læra í gegnum leik í öruggu umhverfi þar sem þau fá að taka þátt í skapandi tilraunum, þar sem svigrúm er til athugana og samskipta við önnur börn og fullorðna.

Starfið byggir meðal annars á gildum Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og má þar helst nefna:

  • Réttur til leiks, hvíldar og samveru (31. gr.)
  • Réttur til öryggis, umhyggju og verndar (19. gr. og 24. gr.)
  • Réttur til þátttöku og jafnra tækifæra (2. gr. og 12. gr.)

5. Leikur, nám og þroski

Leikur er helsta námsleið barna og kjarninn í starfsemi Opna leikskóla Memmm. Í leik æfa börn samskipti, hreyfingu, mál og sköpun. Þau læra að deila, bíða, leysa verkefni og treysta á eigin getu.

Lögð er áhersla á frjálsan leik með því að gefa börnum og fjölskyldum tíma og rými til þess að leika. Mikilvægt er að bjóða upp á nægan opinn efnivið, að leikföng séu fjölbreytt, aðgengileg börnum og henti ólíkum aldri og þroskastigi. Auk rýmis og tíma fyrir frjálsan leik er einnig boðið upp á söng, sögur, hreyfingu og skapandi efnivið í listasmiðju. Í listasmiðju fá börn og fjölskyldur tækifæri til þess að rannsaka ólíkan efnivið, liti, áferð og fjölbreyttar leiðir í skapandi starfi.

Við styðjum sjálfstæði barna, jákvæða sjálfsmynd og áhrif þeirra á eigin leik. Börn og fullorðnir taka ávallt þátt saman.

Starfsfólk og fjölskyldur í söng- og leikstund

6. Íslenskt málumhverfi og málörvun

Tungumálið opnar dyr að samskiptum, vináttu og þátttöku í samfélaginu. Í Opna leikskóla Memmm leggjum við áherslu á jákvæð og lifandi kynni af íslenskri tungu. Málörvun fléttast inn í leik, söng, bóklestur og samtöl.

Við berum virðingu fyrir öllum móðurmálum. Foreldrar sem eru með annað móðurmál en íslensku fá tækifæri til að læra íslensku með börnum sínum og rými til að æfa hana í öruggu umhverfi án þess að óttast mistök. Við gerum þetta meðal annars með því að:

  • Tala við börn og foreldra og gefa þeim tíma til að svara.
  • Nefna hluti, athafnir og tilfinningar.
  • Syngja íslensk lög, lesa bækur og segja sögur.

7. Læsi og samskipti

Læsi er meira og fjölþættara en að þekkja bókstafi. Það felst líka í að skilja, tjá sig og eiga samskipti. Ung börn lesa í svipbrigði, hljóð, hreyfingar og aðstæður.

Við í Opna leikskóla Memmm styðjum þennan þroska með hvetjandi umhverfi til samtala, aðgengi að bókum, samsöng og frjálsum leik. Í söngstund er lögð áhersla á endurtekningar, hreyfingar og takt. Söngur eykur orðaforða, eflir málskilning, hljóðkerfisvitund og framburð.

8. Heilbrigði og vellíðan

Vellíðan barna og foreldra er ávallt höfð að leiðarljósi í starfi Opna leikskóla Memmm. Við viljum skapa rólegt, öruggt og notalegt umhverfi þar sem gott er að koma, líka á erfiðum dögum.

Börn fá tækifæri til að hreyfa sig, hvílast og leika. Foreldrar geta notið samverunnar og rætt við aðra foreldra. Vinátta og stuðningur foreldra á milli geta dregið úr einmanaleika og skapað einstakt samfélag sem svo styrkir lýðheilsu.

9. Sköpun, náttúra og sjálfbærni

Börn hafa ríka þörf fyrir að rannsaka og skapa. Í Opna leikskóla Memmm fá þau tækifæri til að prófa ólíkan efnivið, liti, form og áferð. Við leggjum áherslu á ferlið og samvinnuna fremur en útkomuna. Við hvetjum til útiveru þegar aðstæður leyfa og bjóðum upp á skipulagt starf utandyra á sumar- og haustmánuðum.

Sköpun og teikning í listasmiðju Opna leikskóla Memmm

Við í Opna leikskóla Memmm nýtum okkur hringrásarhagkerfið og umfram allt bjóðum við upp á vandað leikefni sem endist. Við nýtum efnivið af ábyrgð og kennum börnum að bera virðingu fyrir efni og umhverfi með einföldum athöfnum.

Virkni, stuðningur og rútína foreldra stuðla að bættri líkamlegri og andlegri heilsu, vellíðan og sterkari félagslegum tengslum. Þannig er stuðningur við foreldra ungra barna mikilvæg fjárfesting í sjálfbæru samfélagi í lýðheilsulegu samhengi.

10. Foreldrar eru lykilþátttakendur

Foreldrar, forsjáraðilar og aðrir umönnunaraðilar eru mikilvægustu einstaklingarnir í lífi ungra barna. Með stuðningi við þennan hóp má hafa bein áhrif á velferð barna sem þau búa að til framtíðar. Í Opna leikskóla Memmm eru foreldrar/forsjáraðilar þátttakendur til jafns við börn sín og bera ábyrgð á þeim á meðan heimsókn stendur. Við viljum að Opni leikskóli Memmm sé vettvangur þar sem foreldrar/forsjáraðilar geta kynnst öðrum, deilt reynslu, fengið fræðslu og myndað tengsl sem vara.

Í starfinu verða foreldrar einnig vitni að fyrstu skrefum barna sinna í leik með öðrum og er það upplifun foreldra að reynslan sé góður undirbúningur fyrir aðlögun að leikskóla.

Foreldrar eru mikilvægur hlekkur í starfsemi Opna leikskóla Memmm. Árlega er lögð fyrir þjónustukönnun þar sem markmiðið er að rýna í upplifanir og þarfir fjölskyldna sem er mikilvægt fyrir þróun starfseminnar.

11. Inngilding og fjölmenning

Opni leikskóli Memmm er fyrir allar fjölskyldur og er farsæll vettvangur fyrir fjölskyldur sem hafa lítið bakland eða eiga á hættu að einangrast. Við viljum að fólk af ólíkum uppruna hittist, kynnist og læri hvert af öðru. Opni leikskóli Memmm getur verið mikilvægur fyrsti viðkomustaður fyrir fjölskyldur sem eru nýfluttar til Íslands. Hér geta þær kynnst íslensku máli, menningu og samfélagi. Með inngildandi starfsemi má veita jöfn tækifæri til þátttöku í samfélaginu og getur aukið möguleika á atvinnuþátttöku.

Inngildandi leikur og samvera fjölskyldna í Opna leikskóla Memmm

Þátttaka í starfi Opna leikskóla Memmm getur einnig verið hvatning til að skrá börn sín í leikskóla. Starfsfólk hvetur fjölskyldur með annan menningar- og tungumálabakgrunn til að skrá börn sín með tilliti til máltöku og jafnrétti til náms síðar.

12. Stuðningur við foreldra og fjölskyldur

Jafningjastuðningur er mikilvægur liður í starfsemi Opna leikskóla Memmm þar sem foreldrar hitta aðra í sömu stöðu, deila reynslu sinni og spegla sig í öðrum. Fjölskyldur og foreldrar mynda tengsl og vinasambönd sem vara eftir að þátttöku í Opna leikskóla Memmm lýkur.

Uppeldi barna er bæði gefandi og krefjandi. Í Opna leikskóla Memmm geta foreldrar rætt málin og spurt spurninga en reglulega er boðið upp á fræðslu af fagaðilum hvers viðfangsefnis hverju sinni. Fræðsluerindin eru gagnleg fyrir öll sem koma að uppeldi ungra barna og geta til dæmis fjallað um uppeldi, svefn, næringu, málþroska og fyrstu hjálp.

13. Samstarf við samfélagið

Opni leikskóli Memmm á í góðu samstarfi við fjölmarga aðila svo sem bókasöfn og samfélagshús en vilji er fyrir frekara samstarfi við til dæmis heilsugæslu, ungbarnavernd, félagsþjónustu, fræðsluaðila og önnur félagasamtök. Samstarfið getur falist í fræðslu, kynningum, sameiginlegum verkefnum og miðlun upplýsinga.

Opni leikskóli Memmm styður við samfélagið með því að:

  • Skapa tækifæri fyrir yngstu börnin til að taka þátt í skipulögðu en frjálsu starfi sem undirbýr þau fyrir leikskólagönguna.
  • Bjóða foreldrum/forsjáraðilum virkni og þátttöku í samfélaginu.
  • Stuðla að aukinni íslenskukunnáttu foreldra sem eru með annað móðurmál en íslensku sem getur auðveldað þátttöku í samfélagi og atvinnulífi.
Útivera og samvera fjölskyldna á vegum Opna leikskóla Memmm

Samvinna skiptir miklu máli til að tryggja sjálfbæra faglega starfsemi til lengri tíma og hefur Opni leikskóli Memmm áhuga á víðtækara samstarfi um land allt.

14. Starfsfólk og faglegt starf

Starfsfólk Opna leikskóla Memmm er allt fagmenntað, má þar helst nefna iðjuþjálfa, leikskólakennara og grunnskólakennara. Starfsfólkið einsetur sér að taka á móti fjölskyldum af hlýju og virðingu. Þá viljum við gjarnan að starfsfólk geti leitt námskeið sem styðja foreldra í uppeldishlutverkinu, hafi þekkingu á sviði fjöltyngis og samtalstækni. Starfsfólkið skapar öruggt umhverfi og hefur þekkingu á þroska barna, leik og fjölbreyttum þörfum fjölskyldna.

Lögð er áhersla á fagmennsku, trúnað og góð samskipti. Velferð og öryggi barna eru ávallt í fyrirrúmi. Starfsfólk fylgir gildandi lögum og reglum um barnavernd, öryggi og persónuvernd.

15. Gæði, mat og þróun

Starfsemi Opna leikskóla Memmm þróast eftir þörfum þeirra fjölskyldna sem hana sækja. Hlustað er á þátttakendur og reglulega er metið hvernig tekst til að ná settum markmiðum.

Árlega er gerð þjónustukönnun þar sem fylgst er með aðsókn, þátttöku, ánægju og kallað er eftir skoðunum og ábendingum frá þátttakendum. Niðurstöðurnar eru nýttar til úrbóta. Raddir barna og foreldra eru mikilvægur leiðarvísir í öllu starfi Opna leikskóla Memmm.

Við komu í Opna leikskóla Memmm eru þátttakendur hvattir til að skrá sig til leiks í rafrænu skráningarkerfi þar sem skráðar eru ópersónugreinanlegar upplýsingar. Úr gögnum eru unnar neðangreindar upplýsingar fyrir skýrslu innra mats:

  • Fjölda þátttakenda á dag
  • Þátttaka eftir kynjum
  • Þátttöku fjölskyldna með annan menningar- eða tungumálabakgrunn
  • Aldur barna
  • Póstnúmer þátttakenda

16. Opni leikskóli Memmm og heimsmarkmiðin

Starfsemi Opna leikskóla Memmm styður við sjálfbæra og réttláta samfélagsþróun í takti við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og er þá helst litið til neðangreindra markmiða:

  • Markmið 3 – Heilsa og vellíðan.
  • Markmið 4 – Menntun fyrir alla.
  • Markmið 5 – Jafnrétti kynjanna.
  • Markmið 10 – Aukinn jöfnuður.
  • Markmið 17 – Samvinna um markmiðin.
Bóklestur og samvera í Opna leikskólanum

Samfélag sem byrjar með samveru

Í Opna leikskóla Memmm trúum við að litlu stundirnar skipta miklu máli. Bros milli barna, ný vinátta, sameiginlegur söngur eða samtal yfir kaffibolla getur haft meiri áhrif en við gerum okkur grein fyrir.

Við viljum að Opni leikskóli Memmm sé staður þar sem fjölskyldur finna hlýju, öryggi og samfélag. Staður þar sem börn fá að vera börn og foreldrar fá að vera saman.

Opni leikskóli Memmm er staður þar sem leikur tengir fólk saman.

Viltu vera Memmm?

Hlökkum til að taka á móti þér og þinni fjölskyldu í opna leikskólanum.

Fagleg viðmið og heimildir

Við gerð námskrárinnar var litið til „Program för öppen förskola“ frá Stokkhólmi en tekið var mið af íslenskum áherslum á leik, námi, réttindum barna og foreldrasamstarfi.

Til hliðsjónar voru einnig höfð lög um leikskóla nr. 90/2008, Aðalnámskrá leikskóla, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna (lög nr. 19/2013) og lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021, ásamt Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Opinbert skjal

Sækja námskrá Opna leikskóla Memmm

Útgefið af Opna leikskóla Memmm, nóvember 2026.