Memmm
Frétt Úttekt

Opni leikskóli Memmm brúar þjónustubil og styður barnafjölskyldur

Börn og foreldrar að leika í Opna leikskólanum

Ný úttekt á starfsemi Opna leikskóla Memmm sýnir að starfsemin gegnir mikilvægu hlutverki fyrir barnafjölskyldur og sveitarfélög. Opni leikskóli Memmm veitir fjölskyldum stuðning meðan beðið er eftir leikskólaplássi, býður brúarúrræði þegar leikskólastarf raskast og skapar vettvang fyrir jafningjastuðning, fræðslu og félagsleg tengsl. Starfsemin er vettvangur lýðheilsu, fræðslu og forvarna.

Skýrsla

Kynntu þér úttektina í heild

Sæktu skýrslu Gunnars Úlfarssonar um opinberan ávinning af starfsemi Opna leikskólans sem PDF skjal.

Yfir 4.700 fjölskylduheimsóknir voru í Opna leikskóla Memmm skólaárið 2025–2026 og að meðaltali sótti 31 fjölskylda hverja opnun. Þá töldu 93% foreldra sem svöruðu þjónustukönnun að þátttakan hjálpaði fjölskyldunni að undirbúa aðlögun að leikskóla. Niðurstöðurnar benda til þess að Opni leikskóli Memmm sé mikilvæg viðbót við þjónustu sveitarfélaga við ung börn og foreldra þeirra.

Heildarfjöldi fjölskylduheimsókna 2025-2026 eftir starfsstöðvum

Greiningin var unnin af Gunnari Úlfarssyni, hagfræðingi og ráðgjafa, að beiðni stjórnenda Opna leikskóla Memmm. Markmiðið var að varpa ljósi á umfang og eftirspurn eftir þjónustunni og ávinning hennar fyrir fjölskyldur og sveitarfélög. Hún byggir á gögnum um starfsemina, þjónustukönnun, viðtölum, opinberum gögnum og samanburði við erlend úrræði.

Brúar bilið fram að leikskólagöngu

Opni leikskóli Memmm starfar að sænskri fyrirmynd og býður gjaldfrjálsan samverustað fyrir ung börn og umönnunaraðila þeirra. Þar býðst fjölskyldum tækifæri á að leika, syngja og skapa í örvandi umhverfi og fulloronir kynnast og deila reynslu. Fjölskyldur geta mætt án forskráningar eða tilvísunar og umönnunaraðili dvelur með barninu allan tímann.

Heimsóknum í Opna leikskóla Memmm eykst fram að innritun á leikskóla

Aðsóknartölur sýna að þörfin fyrir þjónustuna eykst þegar nær dregur haustinnritun leikskóla. Meira en tvöfalt fleiri fjölskyldur sækja hverja opnun að meðaltali í lok skólaárs en við upphaf þess. Þetta bendir til þess að Opni leikskóli Memmm mæti vaxandi þörf fjölskyldna meðan börn bíða eftir leikskólaplássi.

Starfsemin nýtist einnig þegar leikskólaþjónusta raskast. Meðalaðsókn í Samfélagshúsið Aflagranda og á Borgarbókasafnið í Gerðubergi var 57% meiri í febrúar 2025, þegar leikskólaverkföll stóðu yfir, en í sama mánuði árið eftir. Starfsfólk varð jafnframt vart við fleiri eldri börn sem annars hefðu verið í leikskóla.

Samvera styrkir tengsl og undirbýr börn fyrir leikskóla

Ávinningur starfseminnar felst einnig í reglulegri samveru og stuðningi. Um 85% heimsókna í maí 2026 voru frá fastagestum, fjölskyldum sem komu oftar en einu sinni þann mánuð. Foreldrar lýsa því að heimsóknirnar hafi skapað rútínu, rofið einangrun og leitt til vinatengsla sem haldist utan Opna leikskóla Memmm.

„Lífið í orlofinu fékk tilgang. Að mæta á réttum tíma, hún hitti önnur börn, ég hitti aðra foreldra. Fengum báðar útrás fyrir félagslegu hliðina,“
— Segir foreldri í þjónustukönnuninni

Leikur, söngur og samverustundir gefa börnum færi á að æfa samskipti og venjast skipulagðri dagskrá. Mat foreldra á undirbúningi fyrir leikskóla endurspeglar þetta: 93% svarenda töldu þátttökuna hjálpa við aðlögun. Fjölskyldum býðst jafnframt gjaldfrjáls fræðsla um meðal annars málörvun, næringu, hreyfiþroska og skyndihjálp. Um fjórðungur fjölskyldna hefur erlendan menningar- og tungumálabakgrunn og starfsemin skapar tækifæri til tengslamyndunar og þátttöku í samfélaginu.

Tryggari umgjörð forsenda áframhaldandi uppbyggingar

Úttektin bendir á að ótrygg fjármögnun og aðstaða hafi leitt til flutninga og lokunar starfsstöðva. Skammtímasamningar takmarka fyrirsjáanleika í rekstri og gera erfiðara að tryggja mönnun og byggja þjónustuna upp til lengri tíma.

Meðal tækifæra sem greiningin dregur fram eru langtímasamningar, fastir þjónustustaðir og formlegra samstarf við ríki, sveitarfélög, ungbarnavernd og félagsþjónustu. Slíkt samstarf gæti auðveldað fjölskyldum að finna úrræðið og styrkt tengsl Opna leikskóla Memmm við aðra þjónustu.

Skýrsla: Virðisgildi Opna leikskólans

Greining á opinberum ávinningi af starfsemi Opna leikskóla Memmm (Gunnar Úlfarsson, ágúst 2026).