Opni leikskóli Memmm hlýtur hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2026
Viðurkenning fyrir frumkvöðlastarf sem eflir velferð barna, styrkir fjölskyldur og skapar samfélag þar sem öll eru velkomin.
Ljósmynd: Mummi Lú
Við erum stolt að segja frá því að Opni leikskóli Memmm hlaut hvatningarverðlaun Íslensku menntaverðlaunanna 2026 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum nú á dögunum. Verðlaunin eru mikilvæg viðurkenning á því frumkvöðla- og brautryðjendastarfi sem félagasamtökin hafa unnið frá stofnun þeirra árið 2021.
Opni leikskóli Memmm býður barnafjölskyldum upp á gjaldfrjálsan og opinn vettvang þar sem börn fá tækifæri til að leika, læra og þroskast í öruggu og örvandi umhverfi. Á sama tíma gefst foreldrum tækifæri til að mynda félagsleg tengsl, deila reynslu og fá stuðning í uppeldishlutverkinu.
Starfsemin fer fram í bókasöfnum og samfélagshúsum í Reykjavík og Hafnarfirði og hefur vaxið jafnt og þétt. Í dag eru heimsóknir barna og fullorðinna um 10.000 á ári.
Leikur, tengsl, samfélag
Við leggjum áherslu á að allar fjölskyldur upplifi sig velkomnar, óháð uppruna, fötlun eða félagslegri stöðu. Sérstök áhersla er á íslenskt málumhverfi, málörvun, snemmtækan stuðning og að draga úr félagslegri einangrun foreldra.
Auk leiks og samveru er boðið upp á fjölbreytta fræðslu fagfólks um uppeldi, þroska, næringu og öryggi barna. Þannig gegnir Opni leikskóli Memmm mikilvægu hlutverki í forvörnum og lýðheilsu.
Sænsk fyrirmynd
Starfsemi Opna leikskóla Memmm byggir á sænskri hugmyndafræði um Öppna förskolan, sem hefur um áratugaskeið verið sjálfsagður hluti af þjónustu við barnafjölskyldur í Svíþjóð.
Framtíðarsýn okkar er að sambærileg þjónusta verði aðgengileg öllum barnafjölskyldum á Íslandi, óháð búsetu og aðstæðum.
Við erum bara rétt að byrja
„Við hjá Opna leikskóla Memmm erum gríðarlega stolt af þessari viðurkenningu. Hún staðfestir mikilvægi þess að fjárfesta í velferð barna og fjölskyldna strax á fyrstu æviárunum. Við þökkum starfsfólki, samstarfsaðilum og ekki síst fjölskyldunum sem hafa skapað þetta einstaka samfélag með okkur.
Verðlaunin eru okkur mikil hvatning til að halda áfram að þróa starfsemina og ná til enn fleiri fjölskyldna. Við erum bara rétt að byrja og sjáum fyrir okkur að innan fimm ára verði Opni leikskóli Memmm starfandi í mun fleiri sveitarfélögum.“
Verið öll hjartanlega velkomin að leika!
Opni leikskólinn er gjaldfrjáls og opinn öllum fjölskyldum með börn á leikskólaaldri — engin forskráning eða tilvísun nauðsynleg.